Aðförin gegn landsbyggðinni

Það skaut verulega skökku við þegar við fréttum nú síðsumars að leggja ætti niður leið landsbyggðarstrætós hér í uppsveitum. Í kjölfar mótmæla fékkst í gegn að halda inni tveimur ferðum á dag, að morgni og síðdegis, en þó aðeins á virkum dögum. Eftir stendur þjónusta sem gegnir fyrst og fremst hlutverki skólabíls.

Til upprifjunar eru ekki svo mörg ár síðan skólaakstur í FSu var sameinaður landsbyggðarstrætó í hagræðingarskyni. Nú sitja almennir farþegar eftir með takmarkaða ferðamöguleika. Þegar almenningssamgöngur eru skornar niður á landsbyggðinni þurfa íbúar að reiða sig enn meir á bílinn með tilheyrandi vaxandi kostnaði vegna hækkunar skatta í formi kílómetragjalds.

Allt leggst á eitt
Hér í uppsveitum er ferðaþjónustan ein grunnstoða atvinnulífsins. Að baki henni standa fyrirtæki sem hafa fjárfest í uppbyggingu, sum í áratugi, starfsfólk sem á afkomu sína undir rekstrinum og sveitarfélög sem hafa byggt upp innviði og þjónustu þessu til stuðnings. Breytingar á rekstrarskilyrðum þessara fyrirtækja snerta því samfélagið allt.

Þegar rætt er um kílómetragjald, virðisaukaskatt á aðgang að baðlónum og náttúrupassa þarf að leggja mat á samanlögð áhrif. Hvaða áhrif getur þetta haft á ákvörðun ferðamanna um val á áfangastöðum? Hver eru áhrifin á samkeppnishæfni fyrirtækja og möguleika þeirra til að halda áfram að fjárfesta og skapa störf?

Lykilspurningin er kannski: Hver er tilgangurinn? Ég efast ekki um að hver og ein þessara breytinga eigi sér rökstuðning hjá hverjum og einum ráðherra sem leggja þær fram. Raunar er sorglegt að horfa uppá að ríkisstjórnarflokkarnir virðast samstíga í þessum aðgerðum. Fyrir okkur íbúana eru heildaráhrifin hins vegar augljós og hreint og beint skaðleg. Þrengt er að möguleikum fólks til að komast til og frá vinnu. Fyrirtæki verða fyrir skaða vegna kostnaðaráhrifa. Sveitarfélögin kunna að þurfa að hægja á uppbyggingu. Allt leggst á eitt að þyngja róðurinn.

Uppbygging krefst fyrirsjáanleika
Þetta kemur á sama tíma og sveitarfélögin eru að byggja upp innviði til að mæta vexti undanfarinna ára og gera frekari uppbyggingu mögulega. Fjárfestingar liggja fyrir í vatnsveitu, fráveitu og annarri grunnþjónustu sem bæði íbúar og atvinnulíf treysta á. Þessum fjárfestingum fylgir viðvarandi kostnaður við rekstur og viðhald.

Gleymum því ekki að vöxtur ferðaþjónustunnar snýst líka um fólkið sem kemur til starfa og sest að í sveitarfélögunum og byggir þar upp sitt líf. Ný störf kalla á húsnæði, leikskólapláss, grunnskóla og fjölbreytta þjónustu. Sveitarfélögin þurfa með góðu móti að geta skipulagt og lagt í fjárfestingu til lengri tíma til að mæta þessari þróun.

Slíkar ákvarðanir eru teknar í trausti þess að hér verði áfram rekstrarskilyrði fyrir samkeppnishæft atvinnulíf. Skyndilegar breytingar á forsendum koma sér þannig illa fyrir alla viðkomandi: fyrirtækin, sveitarfélögin og heimilin. Við eigum að geta treyst því að ákvarðanir ríkisins byggi á samráði og fyrirsjáanleika.

Aðför ríkisvaldsins gegn landsbyggðinni, ekki síst uppsveitum Árnessýslu, vekur ugg og eykur á áhyggjur af afkomu heimila, rekstri fyrirtækja og möguleika samfélaganna til að halda áfram að vaxa og dafna.

Við höfum komið sjónarmiðum okkar á framfæri í formi fjölda umsagna um fyrirhugaðar breytingar sem hér hefur verið tæpt á. Þingmenn þurfa að sýna í verki að tekið sé mið af þeim ábendingum og áhyggjum sem þar koma fram. Ríkisstjórnin þarf að standa við sín eigin orð um öfluga byggð og atvinnulíf um land allt. Annað má líta á sem aðför gegn landsbyggðinni. Henni verður mætt af hörku.

Fjóla St. Kristinsdóttir
Sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps

Fyrri greinHrekkjavakan slær í gegn í Horninu